Lífeyrissjóðir græða og tapa, en hvað um eigendur þeirra?

Ég hef nokkuð velt því fyrir mér, hvort lífeyrissjóðirnir eigi að vera eða fara. Hvort við eigum að hafa rúmlega 40 forstjóra og stjórnir til að græða eða tapa fyrir okkur sem greiða í sjóðina, eða hvort við ættum að greiða meiri skatt (í stað þess að greiða í lífeyrissjóð) og láta Ríkið úthluta öllum jöfnum lífeyri.

Þetta má skoða frá mörgum sjónarhornum, en mig langar til að kasta fram einni spurningu og vonast til þess að einhver sé fær um að svara henni rétt.

Hvað þyrfti skattpósentan að hækka mikið, til að greiða út þann lífeyri sem lífeyrissjóðirnir greiða nú?

Hvað eru það margar krónur og hvað borgum við (ásamt atvinnurekendum) margar krónur til lífeyrissjóðana nú?

Rétt svar við þessu, ætti að gefa einhverja hugmynd um skilvirkni sjóðana, eða?


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband